Mánudagur, 15. janúar 2007
Alcan stækkun
Margir tala um sjónmengun af álverinu í Straumsvík. Umhverfi álversins er með snyrtilegustu iðnaðarlóðum sem ég hef séð. Hins vegar ef skoðað er hinumegin við Reykjanesbrautina erum við komin í mjög svo sóðalegt umhverfi. Það virðist ekki vera nema eitt fyrirtæki þar, Íslandsprent, sem hefur fyrir því að líta þokkalega út, enda tekst þeim það mjög vel, allt mjög snyrtilegt og flott hjá þeim. Ef byggingar Isal eru sjónmengun, hvað eru þá blokkirnar í Vallarhverfinu annað en sjónmengun og þá aftur byggingarnar í iðnaðarhverfinu hinumegin við Reykjanesbrautina ? Hvað er IKEA annað en sjónmengun í þessu fallega hrauni ? Hve stór hluti íbúa á Völlunum sjá álverið út um gluggan hjá sér, ótrúlega lítið hlutfall held ég. Ég held að það sé nokkuð ljóst að ef Isal fær að stækka, þá verður það landsvæði sem það mun standa á, eins snyrtilegt og það getur orðið ef verður byggt á því á annað borð, og það er ekkert ef, því það verður byggt á því, hvað sem verður svo byggt.
Nálægð við byggð er þekkt um allan heim. Hjá til dæmis frændum okkar í Noregi eru álver inn í grænum dölum með íbúabyggð alveg upp að girðingu, allir eru sáttir, því fólk veit hve mikils virði þau eru fyrir samfélagið og að því stafar engin hætta af þeim.
Fram kemur á heimasíðu Isal: ...viðmiðunarmörk sem gilda um flúor taka mið af því að gróður er mun viðkvæmari fyrir flúormengun en fólk. Þannig eru heilsuverndarmörk fyrir fólk 30 sinnum hærri en þau viðmiðunarmörk fyrir gróður sem okkur er gert að uppfylla ( http://www.alcan.is/?PageID=215 ).
Það er einnig ljóst að þó Isal verði ekki stækkað verður samt virkjað í Þjórsá, því það er vöntun á rafmagni. Ég þekki mann sem þekkir mann sem á foreldra sem eiga land að Þjórsá. Hann hefur eftir þeim að af þeim sem eiga land að Þjórsá er einungis einn sem er á móti því að virkja, svo hvað erum við að rífa kjaft sem vitum ekki um hvað er verið að tala. Teljið þið ykkur vita um hvernig virkjanir er verið að tala ? Áður en þið játið því, bið ég ykkur að brjóta odd af oflætinu, kynna ykkur málið og athuga hvort þið hafið rétt fyrir ykkur. Eruð þið viss um að virkjun sé bara eitthvað slæmt ?
Læt þetta duga í bili á meðan þið athugið þetta.
Athugasemdir
Tek bara þín orð fyrir því að þetta sé gott
Ágúst Dalkvist, 15.1.2007 kl. 17:46
Hef alltaf fundist alverid vera til fyrirmyndar litur alltaf svo thrifalega ut
Nanna (IP-tala skráð) 16.1.2007 kl. 08:41
Álver eru misjöfn og það fer eftir hvort er notaður þurr eða vothreinsibúnaður, það skiptir miklu.
Hins vegar hafa stjórnendur álversins sýnt af sér mikla mannfyrirlitningu í stjórnum og af þeim sökum er engin ástæða til að álverið fái að stækka.
Þeir reyndu að vísu að bæta aðeins fyrir mannfyrlitningarstefnuna sína með því að semja við starfsmenn sem þeir voru nýbúnir að reka eftir 35 ára starf.
Ég get ekki fallist á að fyrirtæki fái að stækka sem kemur illa fram við starfsfólk sitt og sýnir því fyrirlitningu. Og það við fólk sem hefur eytt heillri starfsævi hjá því.
Sigurður H. Einarssons, 16.1.2007 kl. 13:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.