Hagsæld í Hafnarfirði

Ég fór á stefnumót fyrirtækja í Hafnarborg síðasta föstudagsmorgun sem nefndist Hagsæld í Hafnarfirði. Þar kom margt fram sem almenningur kannski ekki veit en þyrfti að vita. Ég sá því miður ekki fréttirnar um kvöldið en mér skilst að þar hafi verið snúið út úr flestu sem kom fram eða klippt til þannig að önnur merking og útkoma var fengin.

Þær upplýsingar sem ég fékk á fundinum voru m.a. þessar:

Lúðvík Geirsson talaði fyrstur og fór yfir ferlið sem Alcan hefur verið í undanfarin ár. Hann sagði okkur frá nýja deiliskipulaginu sem við erum að fara að kjósa um og sýndi okkur myndir. Mér leist mjög vel á þetta og satt best að segja miklu betur en ég átti von á og er ég þó eindregið hlynnt stækkun. Með auknum mengunarvörnum verða viðmið brennisteins lækkuð um ca helming. Þynningarsvæðið er minnkað um meira en helming og sýndi hann myndir og færði rök fyrir hvernig það var hægt. Sjónmengun verður minni og verð ég að segja að myndirnar voru mjög flottar sem hann sýndi. Byggingar sem áttu upphaflega að standa við Hafnarfjarðarenda Kerskálanna færast inn á milli skála. Trjámanir verða settar allavega þeim megin sem snýr að Hafnarfirði, sem minnkar töluvert sjónmengun og hávaðamengun ef þá einhver er. Áhersla verður semsagt lögð á hönnun og ásýnd svæðisins og sýnist mér að við getum verið verulega stolt af verksmiðjunni þegar hún verður fullkláruð, allt umhverfið til fyrirmyndar, eins og það reyndar er í dag í sambandi við umgengni og umhirðu. Ennfremur verður virk vöktun á loftmengun og verða staðsettar alls fjórar mengunarstöðvar allt í kringum verksmiðjuna, m.a. uppi á Holti og á Völlunum.

Þetta var það helsta sem mér fannst markverðast hjá Lúðvík og finnst mér þetta ansi markvert og spennandi, hlakka til að sjá meira þegar þetta verður kynnt betur.

Segi ykkur meira skemmtilegt af fundinum við fyrsta tækifæri.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hehehe mengunarstöðvarnar sem verða uppá holti og á völlunum, verður það eitthvað sem mengar meira en álverið híhí svo fólkið sjái ekki og hætti að taka eftir mengun frá álverinu hohohoho

Birta (IP-tala skráð) 5.2.2007 kl. 23:29

2 Smámynd: Jóhanna Fríða Dalkvist

já, það kemur til með stíga frá þeim svartur reykur þegar bjart er og hvítur í myrkri

Jóhanna Fríða Dalkvist, 6.2.2007 kl. 08:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband