Cheltenham?

þetta er nú bara lið sem ég hef aldrei heyrt neitt um og samt rosa frétt um að þeir vildu fá okkar frábæra leikmann Brynjar Björn...kannski er það bara af því að ég hef fylgst of lítið með en mér finnst hann eiga erindi í betri lið.

Samt auðvitað frábært fyrir hann að eiga möguleika á vali, snilldarleikmaður og íslendingar greinilega bestir eins og alltaf. Svo eru allir bestir sem skora sem gestir á Old Trafford Wink


mbl.is "Brosti breitt þegar Brynjar skoraði á Old Trafford"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hlynur Þór Magnússon

Cheltenham er lítið og lítt þekkt sveitaþorp (íbúar aðeins um 110 þúsund) í suðurhluta Englands. Knattspyrnuliðið Cheltenham er í fallsæti (22. sæti af 24) í fyrstu deildinni ensku, eða á svipuðum slóðum og West Ham verður að líkindum eftir tvö ár. Að vísu er fyrsta deildin í Englandi ekki sú fyrsta heldur sú þriðja. Efsta deildin í Englandi nefnist Úrvalsdeild (Premiership), önnur deildin heitir Meistaradeild (League Championship), og síðan kemur loks röðin að fyrstu deild (League One). Næst kemur önnur deild, merkilegt nokk (League Two), en fimmta deildin kallast Nationwide Conference, sem líklega yrði helst þýtt sem Alþingi. Neðsta liðið í neðstu (fimmtu) deild er Tamworth. Það er með sjö skráða markverði en þyrfti sýnilega að hafa fleiri. 20 lið eru í Úrvalsdeildinni en 24 í hverri hinna. Þannig er Cheltenham í 66. sæti í heildina en Tamworth í 116. sæti.

Hlynur Þór Magnússon, 25.2.2007 kl. 09:17

2 Smámynd: Jóhanna Fríða Dalkvist

Hahaha, takk fyrir frábærar upplýsingar, flott mynd af þér Anna

Jóhanna Fríða Dalkvist, 25.2.2007 kl. 14:51

3 Smámynd: Hlynur Þór Magnússon

Athygli vekur, þegar myndin af Önnu á knattspyrnuleikvangi Halifax-liðsins er skoðuð, að þar eru engin mörk. Núna skil ég betur af hverju liðinu gengur svona illa að skora.

Hlynur Þór Magnússon, 25.2.2007 kl. 15:17

4 Smámynd: Jóhanna Fríða Dalkvist

hehehe, já kannski ætti maður að benda þeim á þetta?

Jóhanna Fríða Dalkvist, 25.2.2007 kl. 17:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband