Þetta er vinnan mín

Við í Hag Hafnarfjarðar héldum blaðamannafund í dag og kynntum okkar nýstofnaða félag.

Hagur Hafnarfjarðar er samtök fyrirtækja og einstaklinga sem eru fylgjandi stækkun Isal. 

Það sem við viljum benda aðallega á er að þetta er vinnan okkar. Á árinu 2006 komu 800 fyrirtæki, þar af yfir 100 í Hafnarfirði, að þjónustu við Isal á einn eða annan hátt. Það þýðir að um fimmta hvert fyrirtæki í Hafnarfirði kom að þjónustu við Alcan á síðasta ári, plús hin 700. Þessi 100 í Hafnarfirði fengu í tekjur frá Alcan um einn og hálfan milljarð. 

Treystir sér einhver til að segja að þetta skipti ekki máli ? Við erum bara venjulegt fólk sem viljum halda áfram að vinna við það sem við höfum gert undanfarin ár og margir í hátt í 40 ár, og tryggja með því hag okkar fjölskyldna. Hvaða sveitarfélag myndi þola að fimmta hvert fyrirtæki veikist eða leggst af? Við vitum held ég öll svör við því.

Þessi margfeldisáhrif sem oft er talað um - ÞAÐ ERUM VIÐ

Þessi afleiddu störf sem oft er talað um - ÞAÐ ERUM VIÐ

Þetta venjulega fólk sem þið sjáið á gangi með börnin sín um helgar - ÞAÐ ERUM VIÐ

Þetta venjulega fólk sem nýtur náttúrunnar á sama hátt og allir aðrir - ÞAÐ ERUM VIÐ

 

Hugsum um náttúruna - Hjólum í vinnuna  Wink


mbl.is Hvetja Hafnfirðinga til að samþykkja stækkun álvers
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hef ekki kosningarétt um Álverið. Það er nú stórfurðulegt eitt og sér hvað hópurinn er í raun takmarkaður sem hefur kosningarétt í þessu hagsmunamáli.

hanna birna jóhannsdóttir (IP-tala skráð) 25.2.2007 kl. 21:40

2 Smámynd: Ágúst Dalkvist

..... og gaman væri að vita hvað þú, "og þá sagði stelpan", telur að sé í húfi ef stækkun verði leyfð.

 Þeir sem berjast gegn stækkuninni verða að gera sér grein fyrir því að það eru hagsmunir fljölmargra fjölskyldna í húfi ef af stækkuninni verður ekki og þá er ég ekki að tala um þau störf sem verða til við stækkunina, heldur þau sem hverfa sem nú þegar eru til.

Það er eins og að þeir sem berjast gegn stækkuninni haldi að með því að koma í veg fyrir stækkun álversins í Straumsvík þá komi þau í veg fyrir að álverksmiðja rísi, en svo er ekki. Hún mun þá rísa á öðrum stað þar sem að orkuöflunin fyrir hana veldur margfalt meiri mengun en hún myndi gera hér.

Niðurstaðan er því sú. Ef komið verður í veg fyrir stækkun álversins mun það valda meiri mengun í heiminum og félagar okkar í Hafnarfirði munu tapa störfum sínum. ER EINHVER GRÓÐI Í ÞVÍ????!!!!!!!!

Ágúst Dalkvist, 25.2.2007 kl. 22:00

3 identicon

Til hamingju með "Hagur Hafnarfjarðar" það er gott að finna þennan stuðning frá ykkur til okkar, fólksins sem vinnum í Álverinu.

Ísal er góður vinnustaður, sem er að skila miklu til þjóðarbúsins. bæði tekjur, aukin þekking og þróun. (Stóriðjuskólinn sem er starfræktur í Straumsvík) 

óskráð (IP-tala skráð) 25.2.2007 kl. 22:56

4 Smámynd: Jóhanna Fríða Dalkvist

Það hættir kannski ekki starfsemi á einu bretti en það mun hætta og mjög trúlegast að það verði 2014 eftir aðeins 7 ár þegar raforkusamningarnir renna út. 

Við sem þjónustum álverið munum hinsvegar finna fyrir því strax, því að sjálfsögðu mun það ekki sjá tilgang í að endurnýja búnað og tæki, heldur halda öllu viðhaldi og endurnýjun í lágmarki. Þess vegna munu mörg af okkar fyrirtækjum finna fyrir þessu strax í apríl ef ekki nógu margir segja "JÁ".

Já, ég sást aðeins í fréttunum í gær, hélt glæru-kynningu fyrir blaðamennina, held ég sé efnileg á þing sko

Takk fyrir stuðningin, ekki veitir okkur af og ég er sammála því að auðvitað ætti kosningin að vera á landsvísu en ekki á litlu afmörkuðu svæði. 

Jóhanna Fríða Dalkvist, 26.2.2007 kl. 08:39

5 Smámynd: Grímur Kjartansson

Það var komin tími til að það heyrðist í venjulegur fólki í Hafnafirði með einfaldan skýran boðskap.
Maður er orðinn leiður á þessum háværu minnihlutahópum sem afla fylgis við sín slagorð með einhverjum múgsefjunar tilfinningagraut um alsendis óskyld málefni.
Ég hef ekki kosningarrétt í Hafnarfirði en þið hafið minn stuðning.

Grímur Kjartansson, 26.2.2007 kl. 09:37

6 Smámynd: Dofri Hermannsson

Sæl frænka.

Ég vil byrja á að taka fram að ég virði skoðanir þínar og framsetningu þína á þeim sem mér finnst mjög málefnaleg í flesta staði þótt ég sé ósammála þér í mörgum atriðum.

Mér finnst eins og mörgum öðrum ótrúlegt að á meðan það er röð álframleiðenda að bíða eftir því að fá að reisa álver af svipaðri stærð og álverið í Straumsvík er nú þá telji Alcan þetta allt í einu svo óheppilega stærð að það komi til skyndilokunar ef það fær ekki leyfi til að stækka.

Mér finnst líka gleymast í umræðunni að EF TIL LOKUNAR KEMUR á næstu 10-20 árum þá er alveg örugglega nóg af fyrirtækjum sem vill nýta sér þá orku og staðsetningu sem álverið í Straumsvík væri þá að yfirgefa. Væri það svo ægilegt að það yrði t.d. framleiddar sólarrafhlöður í Straumsvík í stað áls?

Gæti ekki þetta venjulega fólk sem gengur um bæinn með börnin sín um helgar og nýtur náttúrunnar á sama hátt og aðrir alveg sætt sig við það?

Mig myndi langa til að sjá betur hvernig þessir 1500 Hafnfirðingar eru reiknaðir út. Ef sömu útreikningar væru notaðir á Suðurnesin - hvað væri þá margt fólk þar í slæmum málum? 3.500?

Að lokum verð ég að spyrja, af gefnu tilefni í fréttum undanfarinna daga, er þetta vinnan þín? Þ.e. færðu á einhvern hátt borgað fyrir vinnu þína við að hafa áhrif á niðurstöðu kosninganna, í frítíma, hlunnindum eða með öðru móti? Það er nauðsynlegt fyrir fólk að vita.

Kv. Dofri Hermannsson

Dofri Hermannsson, 26.2.2007 kl. 10:06

7 Smámynd: Maron Bergmann Jónasson

Eina ástæðan fyrir því að erlend stórfyrirtæki vilja færa framleiðslu sína til Íslands er ódýr orka.  Vinnuaflið er dýrara, hráefni er flutt gríðarlegar vegalengdir til landsins og álið sömuleiðis frá landinu. 

Það hlýtur því að blasa við að þessi umræddu fyrirtæki eru einungis að koma til landsins vegna þess að hér fá þeir að njóta okkar helsu náttúruauðlindar, vatnsaflins sem þeir fá því sem næst ókeypis miðað við okkur íbúana sem eru að borga margfalt hærra verð fyrir rafmagnið heldur en þessi ágætu fyrirtæki.

Ef þú hugsar ekki 7 ár fram í tímann heldur 70 ár hvernig heldur þú að nágrenni Kárahnjúka verði þá?  Þar sem einusinni var lón verður orðið uppspretta ryks og sands sem dreifir sér yfir allt austurland og hálendi Ísland.

Er þetta það sem við viljum að börnin okkar þurfi að lifa við?  Ég hef þurft að vinna inná svæði álversins í Straumsvík og það sem ég sá fannst mér alls ekki spennandi, með fullri virðingu fyrir öllu starfsfólki álversins þá myndi mig ekki langa til að vinna þar eða vita það að barnanna minna biði starf í einhverjum kerskálanna.

Maron Bergmann Jónasson, 26.2.2007 kl. 12:45

8 identicon

Hugsið um hag þeirra þúsund fjölskyldna sem eiga aleigu sína bundna í fasteignum á Völlunum, Holtinu og Áslandi. Þeirra hagsmunir skipta líka máli, og það milljónatjón sem þeir þyrftu að þola þegar fasteignirnar þeirra lækka í verði ef að stækkun verður. Það er nóg að til er stór hópur af fólki sem getur ekki hugsað sér að búa nálægt risa álveri. Minni eftirspurn eftir húsnæði á þessum stað= lækkun á fasteignaverði.  Ég reyndar tel að allar fasteignir í hafnarfirði lækki í samanburði við nágrannasveitarfélög, því þessi álbræðslubæjarýmind er ekki flott.

Guðbjörg Þórisdóttir (IP-tala skráð) 27.2.2007 kl. 13:09

9 Smámynd: Jóhanna Fríða Dalkvist

Ég er ansi hrædd um að fasteignir lækki líka í verði ef fólk fær ekki vinnu á svæðinu. Af hverju eru íbúðir á Völlunum svona dýrar? Skapast það ekki af eftirspurn? Sá fólkið ekki álverið fyrr en það bar inn síðasta kassann? Það er búið að tala um þessa stækkun síðan árið 1999, svo hún á ekki að koma neinum á óvart held ég. Ef það er svona blómlegt atvinnulíf í Hafnarfirði og fullt af störfum að skapast á nýju ári, langar mig að vita hve mörg vel launuð verkamannastörft hafa skapast á síðustu sjö árum. Eru þessi störf kannski eingöngu í byggingaiðnaði? Hvaða störf eru þetta?

Jóhanna Fríða Dalkvist, 27.2.2007 kl. 14:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband