Af gefnu tilefni

Hvet ykkur til að skoða reglulega síðuna okkar www.hagurhafnarfjarðar.is 

Þar munum við koma reglulega með greinar og ýmislegt annað sem tengist okkar málefnum.

En fyrirsögnin er af gefnu tilefni, athugasemd sem ég fékk frá Dofra Hermannssyni frænda og framkvæmdastjóra þingflokks Samfylkingarinnar sem hljóðar svo:

    "Að lokum verð ég að spyrja, af gefnu tilefni í fréttum undanfarinna daga, er þetta vinnan þín? Þ.e. færðu á einhvern hátt borgað fyrir vinnu þína við að hafa áhrif á niðurstöðu kosninganna, í frítíma, hlunnindum eða með öðru móti? Það er nauðsynlegt fyrir fólk að vita. Kv. Dofri Hermannsson"

Ég vinn í Stímir í Hafnarfirði sem er einn af þjónustuaðilum Isal og er eingöngu í því að þjónusta álver. Ég fæ ekki borgað fyrir að hafa áhrif á niðustöðu kosningana, hvorki í frítíma né öðru, þvert á móti hefur allur minn frítími undanfarið farið í að undirbúa stofnun okkar félags, félagið Hagur Hafnarfjarðar. Ég fæ ekki borgað fyrir þann tíma heldur er það mitt framlag til félagsins.

Það er hinsvegar vinnan mín að þjónusta álverin, og ef álverið í Straumsvík kemur til með að loka eftir 7 ár, sem eru fljót að líða, þá mun það trúlega ekki endurnýja búnað og tæki nema að algjöru lágmarki, þar með minnkar vinnan mín og ekki bara eftir 7 ár heldur strax. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dofri Hermannsson

Þetta er gott að vita frænka og best að hafa uppi á borðum en svo hefur ekki verið um ýmsa sem t.d. hafa tjáð sig af kappi á bloggsíðum t.d. minni.

Ég held að það sé mjög gott að þessi umræða fari fram á opinskáan og málefnalegan hátt. Mínar vangaveltur á móti þessum rökum um skyndilokun álversins ef það fær ekki að stækka upp í tæplega þrefalda stærð sína núna má finna á http://dalkvist.blog.is/blog/dalkvist/entry/132276/

Kv. Dofri.

Dofri Hermannsson, 26.2.2007 kl. 11:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband