Mánudagur, 26. febrúar 2007
Af hverju?
Við í Hag Hafnarfjarðar erum að benda á að við erum líka fólk og að þetta sé vinnan okkar. Er eitthvað ómálefnalegt við það? Hvað er þá málefnalegt? Má ekki segja staðreyndirnar eins og þær eru af því að það gæti opnað augu einhverra?
Á heimasíðu Sólar í Straumi segir að við hefðum frekar átt að viðurkenna að við vildum auka hagnað okkar fyrirtækja. Hver vill það ekki? Við erum hinsvegar að berjast fyrir því að halda því sem við höfum nú þegar og auðvitað vonum við eins og allir aðrir að það bætist eitthvað við seinna. Það er nokkuð augljóst og engin ástæða til að benda á það sérstaklega. Þrátt fyrir það hefðum við örugglega verið sökuð um græðgi ef við hefðum einungis bent á þetta.
Hins vegar hefur undanfarið einungis verið að tala um afleidd störf og margfeldisáhrif og við viljum benda á að bak við þessi orð er venjulegt fólk, ekki bara tölur. Og þá erum við allt í einu orðin ómálefnaleg. Málið virðist vera að ef við segjum "JÁ" þá erum við ómálefnaleg eða eigum of mikla peninga...
Athugasemdir gerðar við málflutning Hags í Hafnarfirði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Jóhönnu Dalkvist sem forsætisráðherra
Jón Gestur Guðmundsson, 26.2.2007 kl. 13:07
Það er þá þannig að ef staðreyndir eru þannig að fólk er hrætt við þær, þá má ekki segja frá þeim því þá eru þær áróður ? ... hmmm...
Jóhanna Fríða Dalkvist, 26.2.2007 kl. 13:27
hahaha, já kannski verð ég fyrsti kvenforsætisráðherra á Íslandi, Jón Gestur ég fæ þá allavega eitt atkvæði frá þér vona ég
Jóhanna Fríða Dalkvist, 26.2.2007 kl. 13:29
Hann hefur eingöngu neitað því að fyrirtækið loki fyrir 2014, tíminn eftir það er í óvissu. Rökin hjá Isal er eins og hjá öllum öðrum fyrirtækjum að ef þau fá ekki að þróast og stækka, þá kemur að því að það borgar sig ekki lengur að reka þau.
Háskólamenntaður maður eins og þú ætti að kynna sér þetta aðeins betur
Jóhanna Fríða Dalkvist, 26.2.2007 kl. 14:00
Valgeir er því miður á villigötum, ekki myndi ég vilja hann sem minn stjórnmálamann (sem verður aldrei sökum þess hvaða flokk hann tilheyrir). Það er alveg rétt hjá þér, Jóhanna, það sem þú segir um vöxt fyrirtækja og að þau hugi að flutningum ef þau fá ekki að vaxa og dafna á þeim stað sem þau eru. Atvinnurekendur í bænum ættu að láta heyra betur í sér og opna augu almennings fyrir mögulegum áhrifum þess hvað gæti gerst ef af lokum yrði, bærinn gæti endað sem svefnbær líkt og önnur bæjarfélög sem treysta alfarið á atvinnumöguleikana í rvk
Jón Ólafur Gestsson (IP-tala skráð) 26.2.2007 kl. 16:27
Sæl Jóhanna,
er þetta sem hann Jón Gestur bloggvinur þinn sagði ekki merki um að vera fullkomnlega rökþrota?
"Þeir í Sól í Straumi eru nú ekki beint í aðstöðu til þess að gagnrýna aðra fyrir ómálefnalega umræðu. Þeir sjálfir hafa logið upp í opið geðið á Hafnfirðingum og komið fram með staðhæfingar sem þeir virðast bara hafa dregið beint út úr rassgatinu á sér."
Kveðja,
Þröstur Sverrisson
félagi í Sól í Straumi
Þröstur Sverrisson (IP-tala skráð) 27.2.2007 kl. 11:30
Ég er nú ekki vön að svara fyrir aðra, tel mig hafa nóg rök fyrir að leyfa eigi stækkun. Held hinsvegar að fólk ætti að hætta að gagnrýna hvert annað og einbeita sér að því að koma fram með staðreyndir og réttar staðreyndir hvaðan sem þær eru dregnar. Finnst persónulega að allar tölulegar staðreyndir eigi að koma beint frá bænum, ekki Hag Hafnarfjarðar og ekki Sól í Straumi, því það væri sama hvað tölur væru háar eða lágar, réttar eða rangar að fólk mun ekki geta treyst þeim fullkomlega fyrr en bærinn kemur með þær svart á hvítu.
Jóhanna Fríða Dalkvist, 27.2.2007 kl. 13:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.