Frítt í strætó

Þegar hægt er að spá fyrir að svifryksmengun verði mikil ákveðna daga, væri ekki hægt að hafa svona "frítt í strætó" daga, væri gaman að prófa það og gá hvort fjölgi. Þá væri komin grundvöllur og góð ástæða fyrir að hafa alltaf frítt í strætó.
mbl.is Ljóst að svifryksmengun fer yfir hættumörk í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhanna Fríða Dalkvist

Já sá það einmitt í fréttum um daginn að þetta gengi vel þar en á sama tíma var verið að hækka gjaldið hér, mjög skrýtin pólitík það

Jóhanna Fríða Dalkvist, 26.2.2007 kl. 15:29

2 Smámynd: Einar Jón

Falleg hugmynd, en hæpið að það gangi upp... 

Þegar spáð er svifryksmengun held ég að færri vilji vera að því að rölta út á stoppistöð (sem er oftar en ekki við stóra umferðargötu) og anda að sér svifrykinu allan tímann, heldur en að stökkva inn í bíl og lágmarka þannig snertingu sína við svifrykið.

Frítt (eða mjög ódýrt) í strætó alla daga er langbesta leiðin til að fá fleiri til íhuga strætó sem raunhæfan samgöngumáta.

Einar Jón, 26.2.2007 kl. 16:57

3 Smámynd: Morten Lange

Einar Jón : Þú heldur örugglega líka að þeir sem hjóla til dæmis í miðborg Lunduna ( til dæmis) anda að sér meira mengun en þeir sem eru á bíl.  Rannsóknir hafa hins vegar sýnt annað.  Bílstjórar anda að sér meiri mengun en þeir sem hjóla. Þetta má lesa um í bæklingnum frá ESB : 
   Cycling the way ahead for towns and cities

Held samt að það vanti að kanna þetta varðandi svifryk.
Alla vega er á hreinu að bílar skapa hættulegt svifryk, á nöglum eður ei, og hjólreiðamenn og gangandi gera það ekki.  Þeir sem hreyfa sér til samgangna eru líka mun hraustari og þola mengun betur, og spara samfélaginu helling af peningum.

Morten Lange, 26.2.2007 kl. 17:50

4 identicon

Bílaeigendur eru nú þegar að borga meira en aðrir til samfélagsins, óþarfi að auka á þann mismun. Viltu ekki bara fara alla leið með þetta? Gera Ísland að kommúnistasamfélagi þar sem allir eru þvingaðir með lögum að nota almannasamgöngur? Viðbjóðslegur fasismi.

Frekar fara í öfuga átt og fella niður núverandi niðurgreiðslur. Þetta er ömurlegt kerfi sem verður líklega alltaf ömurlegt sama hversu miklum peningum verður hent í það, engan veginn hægt að réttlæta það að þvinga alla til þess að taka þátt í því.

Geiri (IP-tala skráð) 26.2.2007 kl. 18:06

5 identicon

Verd ad segja ad thad var aedislegt ad fara til Amsterdam bara fyrir thad ad geta andad i svona storri borg.  Sest varla bill i midbaenum, bara hjol og "trams"  Finnst ad oll lond aettu ad reyna ad taka tha ser adeins til fyrirmyndar

Nanna (IP-tala skráð) 26.2.2007 kl. 19:03

6 Smámynd: Dofri Hermannsson

Það er verið að vinna í þessum málum í Umhverfisráði Reykjavíkurborgar. Kíkið á www.dofri.blog.is

Dofri Hermannsson, 26.2.2007 kl. 19:24

7 Smámynd: Sigurður Ásbjörnsson

Góð ábending.  Ekki verra en margt annað þegar þarf að bregðast spontant við ástandi.

Sigurður Ásbjörnsson, 26.2.2007 kl. 19:26

8 Smámynd: Einar Jón

Morten: Minntist ég einu orði á hjólreiðamenn? Hvað koma þeir málinu við þegar rætt er um muninn á strætó og einkabíl? Og ég sé ekki að það sama gildi um strætófarþega - þeir sitja í umferð 2-3x lengur en bílafólkið, og þurfa þar að auki að labba að strætóstöðinni og bíða í strætóskýlinu, oft við umferðargötu.

Viltu að við bjóðum upp á "frítt að hjóla" þessa daga?

Einar Jón, 27.2.2007 kl. 10:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband