Þriðjudagur, 27. febrúar 2007
Hvar er bæjarstjórnin og bæjarstjórinn?
Af hverju byrjaði utankjörfundaratkvæðagreiðsla um deiliskipulag Hafnarfjarðar áður en bæjarstjórnin gat sjálf ákveðið sig vegna skorts á upplýsingum?
Af hverju tekur svona langan tíma að fá réttar tölur fram?
Af hverju getur Lúðvík ekki, hljótandi afburða kosningu síðasta vor, sagt sína skoðun í þessu máli?
Af hverju var kynningarfundi um deiliskipulagið sem vera átti 1.mars frestað um viku?
Eina sem heyrist frá bæjarstjóra vorum er að eitthvað af þessum upplýsingum komi í byrjun mars.
Byrjun mars byrjar 1.mars en hvað stendur hún lengi?
Þann 1.mars er hálfur mánuður síðan utankjörfundaratkvæðagreiðslan byrjaði.
...best að fá sér uxahryggjahalanegrablómkálssveppasúpu á meðan maður bíður og bíður og bíður og...
Athugasemdir
Sumt gerist löturhægt, en gerist samt að lokum, einhvern veginn. Er ekki þannig með þetta mál allt saman? Skil ekki enn hvernig hægt er að byrja að greiða atkvæði um mál þar sem allar upplýsingar sem eiga að að liggja fyrir, liggja ekki fyrir! Hvað er fólk að kjósa, ef enn eru ekki allar upplýsingar fyrirliggjandi? Jæja, skil ekki alveg, en þetta hlýtur að fá einhvern endi einhverntíma, einhvernveginn allt saman. Bara súpa í bolla þangað til.
Halldór Egill Guðnason, 27.2.2007 kl. 12:48
kvitt
Ólafur fannberg, 27.2.2007 kl. 12:57
Blessuð Jóhanna
Ég sé að fylgjendur stækkunar eru líka gáttaðir á skoðanaleysi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði. Þarna er þó einn punktur sem við andstæðingar og fylgjendur stækkunar getum verið sammála um. Það er erfitt að rökræða þegar það vantar eiginlega allt frá bæjaryfirvöldum. Maður verður bara að fá sér kjötsúpu.
kveðja
Lárus Vilhjálmsson
Lárus Vilhjálmsson, 27.2.2007 kl. 18:53
Já sem betur fer geta yfirleitt allir fundið eitthvað til að vera sammála um og geta staðið saman í því...ættum kannski að hafa sameiginlega súpusamkomu
Jóhanna Fríða Dalkvist, 27.2.2007 kl. 20:25
Ekki vitlaust að koma saman í súpu. Hvort hún á síðan að vera álblönduð miðað við núverandi framleiðslu, eða tvöfaldur skammtur eins og eftir stækkun, ef af verður, gætum við síðan skipst á skoðunum um meðan sötrað er á glundrinu.
Halldór Egill Guðnason, 27.2.2007 kl. 22:41
Komdu sæl Jóhanna, ég er sammála þér, finnst það eiginlega sjálfsagt af bæjarstjóra sem hefur slíkt yfirburðafylgi að hann segi sínu fólki hvað sé best fyrir Hafnarfjörð, Ísal eða ekki Ísal........ hann bara getur ekki þagað þunnu hljóði og ætlast til að fólk úti í bæ taki ákvörðun um eitthvað sem er svo óvíst að hann getur ekki tekið ákvörðun sjálfur !
Sigurður Ólafsson (IP-tala skráð) 28.2.2007 kl. 10:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.