Enn af bæjarfulltrúum

Ef ég myndi leggja fram tillögu til fólks væri ég væntanlega að leita eftir því að hún yrði samþykkt, ekki færi ég að bera fram tillögu sem ég vonaði að yrði felld. Ég myndi líka tala máli tillögunar, allavega að lágmarki segja hvað mér finndist um hana. Ég myndi svo sannarlega ekki fela mig út í horni og þegja, það eitt er víst.

Eftir þrjú ár þegar næstu bæjarstjórnarkosningar verða, verður forvitnilegt að fylgjast með þessum sömu bæjarfulltrúum. Ætla þeir þá að þegja þunnu hljóði til að gefa okkur frið til að kjósa? Ætla þeir þá að fela sig út í horni og leyfa okkur að hugsa í friði? Ætla þeir þá að sitja hjá og sjá bara hvað verða vill? 

Eins og einn sagði á síðunni okkar  

Mikið vildi ég þó geta spurt bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar í Hafnarfirði um “múlbindingu” þeirra um eitt mikilvægasta málefni bæjarfélagins um áratugaskeið! Ef þeir ætla að halda æpandi þögninni til streitu, er ekki ónýtt að spyrja þá hvort þeir muni setja sama hátt á fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar, steinþegja og “leyfa bæjarbúum að gera kosningamálin upp við sig” í friði og spekt, hver og einn fyrir sig????

 

Ég ætla að muna eftir að fylgjast með þeim og mér finnst ólíklegt að ég muni þegja þá. Ég mun segja mína skoðun og ég mun fara á kjörstað og ég mun segja öllum hvað ég mun EKKI kjósa.


mbl.is Hvetja Hafnfirðinga til að taka þátt í íbúakosningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband