Laugardagur, 3. mars 2007
Mútað með menningu
Fékk bréf frá Glitnir inn um lúguna hjá mér í gær, þar sem hann býður mér og öllum öðrum frítt í Hafnarborg og í Byggðasafnið í Hafnarfirði ALLT ÁRIÐ. Þetta er frábært framtak hjá Glitni og alltaf gaman að sjá þegar vel er stutt við menningu og listir bæjarins okkar, gæti meira að segja trúað því að ég nýti mér þetta.
...var samt að spekúlera...
hvað ætli hefði verið á forsíðu blaðanna í morgun ef Isal hefði verið að bjóða... MÚTUR!
hvað ætli hefði verið rætt í dag á blogginu ef Isal hefði verið að bjóða... MÚTUR!
hvað ætli mörgum miðum hefði verið skilað ef Isal hefði verið að bjóða... ja trúlega engum þar sem fólk er alltaf ánægt með að fá eitthvað frítt... sama hvaðan gott kemur... þó það séu MÚTUR!
...en var bara að spekúlera
Athugasemdir
alltaf gott að spekúlera
Ágúst Dalkvist, 3.3.2007 kl. 15:55
Isal : mútur ekki spurning Aðrir: skemmtileg gjöf..
Ólafur fannberg, 5.3.2007 kl. 09:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.