Mánudagur, 5. mars 2007
Alcan: Skattar frá 2005, ekki 2004
Fram hefur komið í fréttum Útvarpsins að ríkið og Hafnarfjarðarbær deila um frá hvaða tíma það gildi að Alcan greiði skatta samkvæmt íslenskum lögum. Það felur í sér að Alcan greiði fasteignagjöld eins og önnur fyrirtæki í stað þess að greiða framleiðslugjald sem rennur til ríkisins. Fasteignagjöldin munu þá renna til Hafnarfjarðarbæjar.
Bærinn og reyndar Alcan líka hafa viljað að þetta gildi frá ársbyrjun 2004 og að ríkið endurgreiði bænum samkvæmt því. Ríkið hefur hins vegar talið að þetta eigi að taka gildi einu til tveimur árum síðar. Fréttastofa Útvarps hefur heimildir fyrir því að ríkið og Alcan hafi samið um að þessi yfirfærsla gildi frá ársbyrjun 2005 eða ári síðar en Hafnarfjarðarbær og Alcan fóru fram á. Þetta eru ráðamenn í Hafnarfirði ósáttir við. Þeir telja að þetta muni allt að 100 m.kr. í tekjur fyrir bæinn og eru ekki tilbúnir að gefa það fé eftir baráttulaust.
Ekki er ljóst hvenær lagafrumvarpið sem kveður á um þessa breytingu verður lagt fram. Samkvæmt upplýsingum úr iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu þar sem frumvarpið er í smíðum er þó hæpið að það verði kynnt fyrir ríkisstjórn á morgun. Alþingi á að ljúka störfum eftir tíu daga og aðeins 5 fundardagar eru eftir þannig að tíminn til að lögfesta þessa breytingu styttist.
tekið af: http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item146163/
" og eru ekki tilbúnir að gefa það fé eftir baráttulaust" ...og samt vilja ýmsir halda því fram að 800 milljónir á ári séu smáaurar fyrir bæinn...jah margt er nú skrýtið í kýrhausnum...
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.