Af hverju ég?

Ég er einn stofnenda og ein af stjórnarmönnum í félaginu Hagur Hafnarfjarðar. Af hverju?

Ástæðan er sú að mér finnst eins og verið sé að ráðast á og ógna mínum persónulegu hagsmunum. Þann 31.mars munum við íbúar Hafnarfjarðar kjósa um hvort mitt fyrirtæki, Stímir, muni halda sínum viðskiptum við Isal áfram. Isal er eins og önnur fyrirtæki að ef þau fá ekki að þróast og stækka, þá kemur að því að það borgar sig ekki lengur að reka þau. Þess vegna mun Isal, ef ekki nógu margir segja "JÁ", hætta að endurnýja búnað og tæki nema það allra nauðsynlegasta. Við getum búist við því að áhrifa muni gæta mjög fljótlega hjá okkur og þá er ég ekki að tala um eftir eitt eða tvö ár heldur strax.

Við höfum fengið að heyra að fyrir okkur komi álver í Helguvík í staðin fyrir álverið í Straumsvík. Þannig verði okkar atvinnuöryggi ekki ógnað. Þetta er bara ekki svona einfalt.

Við þjónustum Isal meðal annars með daglegar rekstrarvörur í framleiðsludeildunum sem kemur til aðallega vegna þess hve sérhæfða framleiðslu Isal er með. Isal flytur út tilbúna vöru til völsunar. Hins vegar virðist vera að álver í Helguvík muni verða með framleiðslu á áli sem verður flutt út til endurbræðslu annarsstaðar. Þannig álver eru að engu leiti verri en Isal en þarfnast ekki eins mikillar þjónustu frá aðilum eins og okkur. Að öllum öðrum ólöstuðum hefur Isal alltaf verið fasti punkturinn í tekjuöflun okkar og er enn vegna þessa.

Mig langar að vinna í Stímir næstu árin og fá að ráða því hvenær ég hætti. Ég myndi þó sætta mig við að hætta ef fjölskylduaðstæður segðu svo til, en ég á mjög erfitt með að sætta mig við að íbúar Hafnarfjarðar kjósi um hvort ég verði að hætta þar eða ekki. Ég er hluti af margfeldisáhrifunum og afleiddu störfunum sem er oft talað um, ég er lifandi manneskja en ekki tala á blaði.

JÁ ég vil að Isal fái að þróast og stækka, JÁ ég vil að öll fyrirtæki fái að þróast og stækka, JÁ ég vil sjá fjölbreytt og gott atvinnulíf í Hafnarfirði. Þess vegna er ég í Hag Hafnarfjarðar.

 

birtist í Víkurfréttum 1.mars

http://www.vikurfrettir.is/tolublad/743/sida/15/default.aspx

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband