Miðvikudagur, 21. mars 2007
Formúlan á síðustu helgi
Minn maður stóð sig auðvitað lang best á síðustu helgi þá loksins að hann fékk almennilegan bíl í hendurnar (þó það sé vont að segja það). McLaren hefur reyndar greinilega tekið sig á og ég sé jafnvel fram á að ég þurfi bara alls ekki að skipta um lið. Mér líst rosalega vel á Hamilton og Alonso er auðvitað góður, en ég hef bara aldrei haldið neitt sérstaklega upp á hann. En þar sem mér er heldur alls ekki illa við hann gæti vel verið að ég haldi mig við þá gráu þó hann Rækki minn sé orðinn rauður.
Ég á nú aðeins eftir að finna í hjarta mínu hvað á geri, fannst voðalega skrýtið að halda með rauðum bíl á síðustu helgi. Ég held þó og vona að Rækki minn verði heimsmeistari, held að hann verði það núna og allavega í þrjú ár í röð
Renault líst mér ekki á nema auðvitað Kovalainen, hlakka til að fylgjast með honum. En voðalega eru bílarnir þeirra orðnir ljótir
Þið verðið bara að afsaka að ég sé pínu ringluð í þessum aðstæðum. Við hverju er líka að búast? Rækki MINN orðinn rauður og sá grái að komast í lag, ekki von á miklu frá rugluðum haus eins og var settur á mig í upphafi, en þetta kemur, leyfi ykkur að fylgjast með
Bið að heilsa þér Einar Friðrik Haraldur og félögum þínum, takk fyrir innleggið í gestabókina, sjáumst
Athugasemdir
Ég skil vel þennan rugling hjá þér, búinn að vera velta þessu sjálfur fyrir mér en að lokum komst ég að þeirri niðurstöðu að maður skiptir ekki um lið þó að leikmennirnir farið í annað lið og allra síst fer ég að halda með Ferrari, en það er bara ég. Þannig að McLaren verður heimsmeistari í ár. er þaggi?
Glanni (IP-tala skráð) 21.3.2007 kl. 11:20
Jú það er stundum það sem ég hugsa, en þá hugsa ég líka: Ef þetta væri íslendingur? myndi ég þá ekki fylgja honum í rauðan dauðan sama í hvaða lið hann færi? Ég geri það með Eið Smára til dæmis, held reyndar aldrei með hans liði á móti Liverpool, verð að viðurkenna það, svo jú kannski fer kollurinn að skýrast, en ég er með svo stóran haus að þetta er lengi að síast í gegn
Jóhanna Fríða Dalkvist, 21.3.2007 kl. 11:25
svo finnst mér alltaf vænt um finna síðan ég var úti í Finnlandi í sautján daga, þeir eru næstum því íslendingar þessar elskur
Jóhanna Fríða Dalkvist, 21.3.2007 kl. 11:26
takk báðir, mér líður miklu betur, alltaf gott að finna að maður er ekki einn í heiminum
Jóhanna Fríða Dalkvist, 21.3.2007 kl. 12:39
Heihei Jóhanna ! taktu nú töflurnar þínar........ maður fer bara ekki að halda með Ferrari þó Räikkönen geri þessa vitleysu, þú kannski skiptir bara yfir í ManUtd ef Gerrard gerði það ? nei hættu þessu bulli, feldu Räikkönen húfuna þína og pantaðu nýja Hamilton......... áður en þær margfaldast í verði !
Sigurður Ólafsson (IP-tala skráð) 21.3.2007 kl. 18:12
Sigurður vinur minn, ég mun aldrei skipta yfir í man U, ekki einu sinni þó Eiður fari þangað en maður á nú alltaf að gefa öllum séns og nú eru komin ný rök fyrir því að byrja að halda með Fer... ahh ég bara get ekki sagt þetta... þeim rauðu, svo maður verður að skoða alla málavöxtu og taka svo ákvörðun út frá málefnalegum forsendum... eða nei...kannski...
Jóhanna Fríða Dalkvist, 22.3.2007 kl. 08:13
Eiður ? til ManUtd jú einhverjar sögur um það á Sun, en það er ekki endilega ´´sönn´´ saga, en hættu nú nú að þvæla þetta, með hverjum heldurðu í formúlunni ? þú verður að ákveða þig, ef þú er sönn Benz...... þá verður Kimi bara viðhald....
Sigurður Ólafsson (IP-tala skráð) 23.3.2007 kl. 02:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.