Fimmtudagur, 3. maí 2007
Maltið
Ég er búin að svíkjast um svo lengi að segja ykkur frá maltdrykkjunni í Skotlandi, en ástæðan er sú að ég var ekki viss um hvað ég ætti að ljóstra miklu upp. Ég hef núna ákveðið að láta bara allt flakka.
Mér þykir miður að segja frá því að ég drakk enga maltdrykki í Skotlandi en minn betri helmingur reddaði því, við ákváðum nefnilega að skipta með okkur verkum þar sem þetta var mjög stuttur tími.
Ég drakk bjór - Hann drakk malt
Ég verslaði - Hann drakk malt
Ég lá í sólbaði - Hann drakk malt
Ég fór í labbitúr að skoða mig um - Hann drakk malt
Ég lék mér við litlu frænku - Hann drakk malt
Ég fór í keilu - Hann fór í keilu og drakk malt
Þessi verkaskipting gekk mjög vel og ég býst við að við munum nota hana aftur, eini gallinn var að bara annað okkar kom heim með hraustlegt og gott útlit
Athugasemdir
gott að hafa góðan hjálparkokk ;)
Ágúst Dalkvist, 4.5.2007 kl. 11:03
Audvitad sa eg thattinn Hefdi ekki misst af honum. Laura tok hann upp svo eg gaeti sent ther hann svo thu getur nu sed hann sjalf
Sólrún Þórunn D Guðjónsdóttir, 4.5.2007 kl. 13:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.