Fimmtudagur, 22. mars 2007
Fyrirsagnirnar fyrir 40 árum
Fann gamlar fyrirsagnir síðan áður en Isal tók til starfa:
Erlent auðfélag má ekki ná tangarhaldi á atvinnurekstri á Íslandi.
Samnningarnir háskalegir fyrir sjálfstæði Íslands.
ALÞINGI Á AÐ HAFNA ALÚMÍNSAMNINGUM!
Öll þjóðholl öfl þurfa að sameinast gegn alúmínsamningi.
Samningur við alúmínhringinn er hættulegur sjálfsforræði okkar.
Eitthvað kunnuglegt?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Miðvikudagur, 21. mars 2007
Formúlan á síðustu helgi
Minn maður stóð sig auðvitað lang best á síðustu helgi þá loksins að hann fékk almennilegan bíl í hendurnar (þó það sé vont að segja það). McLaren hefur reyndar greinilega tekið sig á og ég sé jafnvel fram á að ég þurfi bara alls ekki að skipta um lið. Mér líst rosalega vel á Hamilton og Alonso er auðvitað góður, en ég hef bara aldrei haldið neitt sérstaklega upp á hann. En þar sem mér er heldur alls ekki illa við hann gæti vel verið að ég haldi mig við þá gráu þó hann Rækki minn sé orðinn rauður.
Ég á nú aðeins eftir að finna í hjarta mínu hvað á geri, fannst voðalega skrýtið að halda með rauðum bíl á síðustu helgi. Ég held þó og vona að Rækki minn verði heimsmeistari, held að hann verði það núna og allavega í þrjú ár í röð
Renault líst mér ekki á nema auðvitað Kovalainen, hlakka til að fylgjast með honum. En voðalega eru bílarnir þeirra orðnir ljótir
Þið verðið bara að afsaka að ég sé pínu ringluð í þessum aðstæðum. Við hverju er líka að búast? Rækki MINN orðinn rauður og sá grái að komast í lag, ekki von á miklu frá rugluðum haus eins og var settur á mig í upphafi, en þetta kemur, leyfi ykkur að fylgjast með
Bið að heilsa þér Einar Friðrik Haraldur og félögum þínum, takk fyrir innleggið í gestabókina, sjáumst
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Miðvikudagur, 21. mars 2007
Já já... nei takk
Þetta hlýtur að vera rosalegt að standa þarna, sé ekki alveg fyrir mér hvort ég myndi þora því eða ekki, en ég hugsa að ég myndi í það minnsta skjálfa talsvert til að byrja með.
Skrýtið að þeir þori að minnast á það í fréttinni að Buzz Aldrin hafi veri næstfyrstur til að stíga á tunglið þar sem margir eru að verða þess nokkuð fullvissir að það hafi enginn stigið á tunglið enn. Það væri samt svo mikil snilld ef það er rétt að tunglmyndirnar hafi verið falsaðar og enn hafi enginn stigið á tunglið. Hugsið ykkur allt sem hefur gerst af því að einhverjum tókst að fara til tunglsins, hvatti auðvitað aðra áfram, einhverjir urðu frægir og hafa fengið eitthvað út úr þvi, einhverjir hafa sprungið úr virðingu og þar fram eftir götunum. Það yrði hreinlega að breyta öllum sögubókum ef þetta verður niðurstaðan....úúú skandall hehehe
Indjánahöfðingjar og fyrrverandi geimfari í 1.200 metra hæð yfir Miklagljúfri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mánudagur, 19. mars 2007
Skúbb dagsins
Heyrst hefur að bæði Sól í Straumi og Hagur Hafnarfjarðar ætli að halda tónleika fyrir sitt stuðningsfólk.
Á tónleikunum hjá Hag Hafnarfjarðar mun spila hljómsveitin Á móti Sól en hjá Sól í Straumi mun spila Síðan skein Sól...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Föstudagur, 16. mars 2007
Allir með ;)
Skjótið á úrslitin í formúlunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 16. mars 2007
Formúlan að byrja
Hlakka til að horfa á fyrsta mótið, finnst margir koma til greina sem eru efnilegir í skemmtilegan kappakstur.Raikkonen, Alonso, Kovalainen,Massa, jafnvel Hamilton ef McLaren hangir í lagi, Button og Kubica, vona líka að Rosberg láti eitthvað segja til sín.
Alonso hraðskreiðastur á fyrstu æfingu í Melbourne | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 15. mars 2007
Er þetta lýðræðið sem fólk vill?
Er þetta það sem við viljum í framtíðinni. Eins og mörgum hefur verið tíðrætt um hér í bloggheimum þá eru ýmsir sem loka á "útvalda" í athugasemdum af því að þeir eru þeim ekki sammála. Þarna er sama fólk að nota sömu aðferðir. Lokar á "útvalda" af því að þeir eru þeim ekki sammála.
Bíðum nú aðeins við, var Sól í Straumi ekki að tala um að við ofurefli væri að etja?... þeir eru með á þessum fundi... hverjum er úthýst og af hverju?!!!
Tilkynningin er hér
Fulltrúum Hags í Hafnarfirði meinuð þátttaka á fundi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 14. mars 2007
Viljum við minnka útflutninginn?
Þetta virðist vera og er eitt af því sem fólk gleymir að spá í þegar það talar um að best væri að losna við álverin úr landi. Við þurfum meiri útflutning því neysla okkar virðist ekkert vera á niðurleið. Ég ætla að þessu tilefni að vitna í ræðu Sveins Hannessonar framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins sem hann hélt á opnum fundi Hags Hafnarfjarðar 1.mars síðastliðinn. Ræðuna í heild sinni er hægt að sjá hér.
Hagvöxtur á Íslandi hefur verið verulegur undanfarin ár. Gallinn er bara sá að hann byggist að verulegu leyti á einkaneyslu. Viðskiptahalli er mikill og viðvarandi. Hagvöxturinn er sem sé að verulegu leyti tekinn að láni erlendis. Allar nágrannaþjóðir okkar keppast við að laða til sín erlenda fjárfestingu og byggja upp varanlegan hagvöxt með útflutningi vöru og þjónustu. Í nágrannalöndum okkar er erlendum fjárfestum tekið opnum örmum. Við vorum sein af stað að opna fyrir erlenda fjárfestingu og erlendir fjárfestar á Íslandi eru af ýmsum ástæðum allt of fáir.
Fólk hlýtur að sjá að við megum ekki við því að minnka útflutningin og það sem meira er, við þurfum að auka hann. Það kemur svo sannarlega við alla þjóðina, ekki bara hafnfirðinga.
Hagvöxtur var 2,6% á síðasta ári | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 13. mars 2007
Flottar
Flosrún Vaka og Bergþóra meistarar í Danmörku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 13. mars 2007
ertu ekki að djóka í mér?
Bannað að spila bingó á ákveðnum tímum um páska | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)