hehemm

http://julli.blog.is/blog/julli/entry/145477/?t=1173784526#comments

Af hverju ekki kona?

Af hverju var ekki kona ráðin?

Hvurslags dagur er þetta, las í morgun að stjórn Exista væri sjálfkjörinn og það eru allt karlar...

Svo eru bara karlar hér í kringum mig í vinnunni

Svo er bara karl heima hjá mér á kvöldin, þ.e. fyrir utan mig

Svo var karl sem afgreiddi mig með Pizzu í gærkvöldi

Svo eru bakarar yfirleitt karlar, af hverju er engin kona bakari?

Svo fá karlar MIKLU síður forræði yfir börnunum, af hverju þurfa konurnar að hanga með börnin?

 

...neeeei bara að spekúlera...Wink


mbl.is Nýr forstjóri á Reykjalundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar er Jón Baldvin?

Getur Jón Baldvin ekki skroppið vestur og bjargað Vestfjörðum? Hann hefur víst svo mörg góð ráð uppi í erminni. Þykist allavega geta bjargað hafnfirðingum. Kannski honum sé svona umhugað um Hafnarfjörð að hann ætlar að sitja á þessum hugmyndum þangað til Hafnarfjörður þarfnast þeirra. Já það er gott að eiga Jón Baldvin að, vildi bara að orðin hans hefðu stundum einhverja fótfestu...
mbl.is Ríkisstjórnin mun ræða um vandamál Vestfjarða á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

neeeei, hvaða hvaða

hann hefur nú aldrei verið á neinum vaxtarhormónum hann Stallone og auðvitað er þetta allt bara misskilningur. Fólkið sem var að henda dótinu út um gluggan var bara að taka til, datt engum það í hug?
mbl.is Stallone í vondum málum í Ástralíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snilld

Til hamingju Haukar - ALLTAF BESTAR
mbl.is Haukar bikarmeistarar í kvennaflokki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trjá-kurlari á Stöð 2 ?

Ætli við þurfum að fara að safna fleiri tannstönglum til að nota á móti vasahnífunum?

Eða ætli Stöð 2 splæsi í trjákurlara á næstunni til að tæta tannstönglana okkar niður?

Hverju getum við átt von á næstu daga og vikur frá Stöð 2?

Ætlar Stöð 2 virkilega að nota íbúakosningar í Hafnarfirði sem tilraun til að klekkja á stjórnvöldum?

 

...sjá fyrir neðan...allar hellur...


Gjörsamlega fyrir neðan allar hellur.

Talandi um málefnalegheit og aðstöðumun.

Blaðið í morgun kynnti niðurstöður úr skoðanakönnun um stækkun álversins í Straumsvík þar sem útkoman var nánast 50/50 með/móti. Stöð 2 grípur þessa frétt og sýnir í kvöldfréttunum og hvað gera þeir? Tala eingöngu við Pétur Óskarsson talsmann Sólar í Straumi og hann fær að rakka allt og alla niður eins og hann listir. Vælir yfir því að þeim finnist þau vera send með vasahníf í orustu á móti fullkominni herfylkingu. Þá segi ég:

- Hverjir hafa fengið alla umfjöllunina undanfarið - Sólin

- Hverjir eru að auglýsa og skrifa greinar jafnt og við - Sólin

- Hverjir eru að opna kosningaskrifstofu - Sólin

- Hverjir fá að fara í fjölmiðla til að rakka niður fólkið í kringum sig án þess að útskýra hlutina - Sólin

Já ég er reið, því Stöð 2 leyfir þeim að koma fram í sjónvarpi og saka okkur um rangfærslur án þess að við fáum að svara fyrir það. Þau segjast ekki fá fjárstuðning. Bull og kjaftæði segi ég. Þau fá fjárstuðning og geta þar að auki fengið hálfa milljón hjá bænum ef þau bera sig eftir því. Pétur Óskarsson hélt því fram á fundi í gær að þau gætu einungis fengið 150 þúsund en Lúðvík leiðrétti það. Lúðvík benti þeim einnig á að þessar 8 milljónir sem þau sóttu um væri upphæð sem bærinn áætlaði að eyða í alla vinnu í kringum kosningarnar, fundina og bæklinga meðtalda!!!

Pétur sagði í féttinni áðan að þau væru að undirbúa að koma fram með sín sjónarmið. Þau hafa ekki gert annað síðustu vikur og mánuði!!! Ætla þau að fara að breyta sjónarmiðum sínum? Það skyldi þó aldrei vera að þau þurfi að breyta málflutningi sínum, af hverju skyldi það vera?

Ég held að Sól í Straumi ætti að hætta að kvarta yfir aðstöðumun gagnvart Hag Hafnarfjarðar því ef þau eru með vasahníf erum við með tannstöngla.

Ég minni fjölmiðla hér og nú á ályktun frá opnum fundi 1.mars sem þeir fengu senda þar sem segir:

Að lokum hvetur fundurinn fjölmiðla til að sýna sanngirni og tryggja ólíkum sjónarmiðum pláss og tíma í þeirri umræðu sem framundan er.

Fjölmiðlar, þið berið ábyrgð, sýnið að þið séuð þess verðir.


Voru flatskjáirnir írskir?

IRISH%20FLAT%20SCREEN%2001
 

 

 

 

 

 

  Tek það fram að þetta er brandari frá Skotlandi LoL

 

IRISH%20FLAT%20SCREEN%2002


mbl.is Fleygðu flatskjá í gegnum rúðu í Bræðrunum Ormsson til að komast út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HA! Er þetta virkilega nóg?

30.000 króna eingreiðsla og væntanlega helmingurinn af henni í skatta og gjöld. Segir nú ýmislegt um launin ef fólki finnst þetta vera góður peningur.

0,75% viðbótarhækkun eftir 9 mánuði!!!

Hækkun um launaflokk eftir heilt ár!!!

Svo skuldbinda samningsaðilar sig til að vinna faglega! Ég bara spyr: Er það ekki sjálfsögð krafa? þarf virkilega að semja sérstaklega um það!!!

Ja hérna, ég er orðlaus...


mbl.is Kennarasamband Ísland og Launanefnd sveitarfélaga ná samkomulagi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Æ, grey karlinn

Hvernig á karlgreyið að geta stýrt allsgáður? Óttaleg afskiptasemi er þetta. Hann er örugglega vanur að stýra með ákveðin skekkjumörk útfrá ástandinu svo spurning hvort hann hafi þetta af svona allsgáður. En við getum huggað okkur við að hann getur hellt í sig um leið og hann lætur úr höfn Woundering

Er þetta ekki samt rosalegt, hvað ætli margir séu undir áhrifum á svona skipum. Ég ætla nú ekki neinum að vera blindfullum við skipstjórn en maður er alltaf að heyra meira og meira af Rússum og "þesslegum" skipstjórum í glasi.

ATH! með "þesslegum" á ég við öðrum frá austur-Evrópu, tek fram að þetta eru ekki kynþáttafordómarBlush 


mbl.is Drukkinn skipstjóri fékk ekki að láta úr höfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband