Þriðjudagur, 27. febrúar 2007
Hvar er bæjarstjórnin og bæjarstjórinn?
Af hverju byrjaði utankjörfundaratkvæðagreiðsla um deiliskipulag Hafnarfjarðar áður en bæjarstjórnin gat sjálf ákveðið sig vegna skorts á upplýsingum?
Af hverju tekur svona langan tíma að fá réttar tölur fram?
Af hverju getur Lúðvík ekki, hljótandi afburða kosningu síðasta vor, sagt sína skoðun í þessu máli?
Af hverju var kynningarfundi um deiliskipulagið sem vera átti 1.mars frestað um viku?
Eina sem heyrist frá bæjarstjóra vorum er að eitthvað af þessum upplýsingum komi í byrjun mars.
Byrjun mars byrjar 1.mars en hvað stendur hún lengi?
Þann 1.mars er hálfur mánuður síðan utankjörfundaratkvæðagreiðslan byrjaði.
...best að fá sér uxahryggjahalanegrablómkálssveppasúpu á meðan maður bíður og bíður og bíður og...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Þriðjudagur, 27. febrúar 2007
Frábært
Þetta gerist svo sannarlega ekki á hverjum degi, hvað ætli litla dúllan hafi hugsað þegar henni var sagt að slökkviliðið ætti að bjarga puttanum en ekki læknirinn
En frábært að vita að það eru alltaf allir mögleikar skoðaðir og ekki bara farið eftir einhverjum hefðum eða stöfum í bók. Það eiga allir hrós skilið sem þarna komu við sögu og ekki síst litla daman
Þriggja ára stúlka flutt af slysadeild á verkstæði slökkviliðsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 26. febrúar 2007
Dagur Hagsins
Já það er mikið búið að gerast í dag í félaginu okkar Hagur Hafnarfjarðar, mikið búið að hringja, kommenta og senda tölvupóst til okkar. Það er frábært og takk fyrir það, endilega halda því áfram. Ingi formaðurinn okkar var á Rás2 í dag og á Ísland í dag í kvöld, verður svo í Ísland í bítið í fyrramálið. Það er alltaf gaman að fá viðbrögð við því sem maður gerir, það þýðir að fólk er að fylgjast með okkur og hefur áhuga á því, hvort sem svo sá áhugi er jákvæður eða neikvæður. Það er öllum hollt að skiptast á skoðunum, þannig sjáum við allar hliðar málsins.
Takk í dag
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mánudagur, 26. febrúar 2007
Frítt í strætó
Ljóst að svifryksmengun fer yfir hættumörk í Reykjavík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Mánudagur, 26. febrúar 2007
Hjólað í vinnuna
Af hverju er ekki bara skellt á eins og einu átaki í "Hjólað í vinnuna" á svona dögum?
Hvað ætli margt VG-fólk sem klappaði um helgina hafi hjólað í vinnuna? Ekki eru þau búin að gleyma þessu strax...eða hvað???
Búist við mikilli svifryksmengun í dag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Mánudagur, 26. febrúar 2007
Góður
Stendur sig vel strákurinn, fær fína kynningu í sloppnum einum fata
Hann er að kynna landið okkar vel og þarna sýna þeir fínar myndir frá Íslandi.
Kastljósinu beint að Birgi á nuddbekk í Indónesíu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 26. febrúar 2007
Af hverju?
Við í Hag Hafnarfjarðar erum að benda á að við erum líka fólk og að þetta sé vinnan okkar. Er eitthvað ómálefnalegt við það? Hvað er þá málefnalegt? Má ekki segja staðreyndirnar eins og þær eru af því að það gæti opnað augu einhverra?
Á heimasíðu Sólar í Straumi segir að við hefðum frekar átt að viðurkenna að við vildum auka hagnað okkar fyrirtækja. Hver vill það ekki? Við erum hinsvegar að berjast fyrir því að halda því sem við höfum nú þegar og auðvitað vonum við eins og allir aðrir að það bætist eitthvað við seinna. Það er nokkuð augljóst og engin ástæða til að benda á það sérstaklega. Þrátt fyrir það hefðum við örugglega verið sökuð um græðgi ef við hefðum einungis bent á þetta.
Hins vegar hefur undanfarið einungis verið að tala um afleidd störf og margfeldisáhrif og við viljum benda á að bak við þessi orð er venjulegt fólk, ekki bara tölur. Og þá erum við allt í einu orðin ómálefnaleg. Málið virðist vera að ef við segjum "JÁ" þá erum við ómálefnaleg eða eigum of mikla peninga...
Athugasemdir gerðar við málflutning Hags í Hafnarfirði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Mánudagur, 26. febrúar 2007
Af gefnu tilefni
Hvet ykkur til að skoða reglulega síðuna okkar www.hagurhafnarfjarðar.is
Þar munum við koma reglulega með greinar og ýmislegt annað sem tengist okkar málefnum.
En fyrirsögnin er af gefnu tilefni, athugasemd sem ég fékk frá Dofra Hermannssyni frænda og framkvæmdastjóra þingflokks Samfylkingarinnar sem hljóðar svo:
"Að lokum verð ég að spyrja, af gefnu tilefni í fréttum undanfarinna daga, er þetta vinnan þín? Þ.e. færðu á einhvern hátt borgað fyrir vinnu þína við að hafa áhrif á niðurstöðu kosninganna, í frítíma, hlunnindum eða með öðru móti? Það er nauðsynlegt fyrir fólk að vita. Kv. Dofri Hermannsson"
Ég vinn í Stímir í Hafnarfirði sem er einn af þjónustuaðilum Isal og er eingöngu í því að þjónusta álver. Ég fæ ekki borgað fyrir að hafa áhrif á niðustöðu kosningana, hvorki í frítíma né öðru, þvert á móti hefur allur minn frítími undanfarið farið í að undirbúa stofnun okkar félags, félagið Hagur Hafnarfjarðar. Ég fæ ekki borgað fyrir þann tíma heldur er það mitt framlag til félagsins.
Það er hinsvegar vinnan mín að þjónusta álverin, og ef álverið í Straumsvík kemur til með að loka eftir 7 ár, sem eru fljót að líða, þá mun það trúlega ekki endurnýja búnað og tæki nema að algjöru lágmarki, þar með minnkar vinnan mín og ekki bara eftir 7 ár heldur strax.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 25. febrúar 2007
Þetta er vinnan mín
Við í Hag Hafnarfjarðar héldum blaðamannafund í dag og kynntum okkar nýstofnaða félag.
Hagur Hafnarfjarðar er samtök fyrirtækja og einstaklinga sem eru fylgjandi stækkun Isal.
Það sem við viljum benda aðallega á er að þetta er vinnan okkar. Á árinu 2006 komu 800 fyrirtæki, þar af yfir 100 í Hafnarfirði, að þjónustu við Isal á einn eða annan hátt. Það þýðir að um fimmta hvert fyrirtæki í Hafnarfirði kom að þjónustu við Alcan á síðasta ári, plús hin 700. Þessi 100 í Hafnarfirði fengu í tekjur frá Alcan um einn og hálfan milljarð.
Treystir sér einhver til að segja að þetta skipti ekki máli ? Við erum bara venjulegt fólk sem viljum halda áfram að vinna við það sem við höfum gert undanfarin ár og margir í hátt í 40 ár, og tryggja með því hag okkar fjölskyldna. Hvaða sveitarfélag myndi þola að fimmta hvert fyrirtæki veikist eða leggst af? Við vitum held ég öll svör við því.
Þessi margfeldisáhrif sem oft er talað um - ÞAÐ ERUM VIÐ
Þessi afleiddu störf sem oft er talað um - ÞAÐ ERUM VIÐ
Þetta venjulega fólk sem þið sjáið á gangi með börnin sín um helgar - ÞAÐ ERUM VIÐ
Þetta venjulega fólk sem nýtur náttúrunnar á sama hátt og allir aðrir - ÞAÐ ERUM VIÐ
Hugsum um náttúruna - Hjólum í vinnuna
Hvetja Hafnfirðinga til að samþykkja stækkun álvers | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Laugardagur, 24. febrúar 2007
Cheltenham?
þetta er nú bara lið sem ég hef aldrei heyrt neitt um og samt rosa frétt um að þeir vildu fá okkar frábæra leikmann Brynjar Björn...kannski er það bara af því að ég hef fylgst of lítið með en mér finnst hann eiga erindi í betri lið.
Samt auðvitað frábært fyrir hann að eiga möguleika á vali, snilldarleikmaður og íslendingar greinilega bestir eins og alltaf. Svo eru allir bestir sem skora sem gestir á Old Trafford
"Brosti breitt þegar Brynjar skoraði á Old Trafford" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)