Fimmtudagur, 1. mars 2007
Nokkrir sígildir fyrir svefnin
Af því að engin gat sagt mér brandara ákvað ég að finna þá sjálf en leyfa ykkur að njóta þeirra líka.
Þetta eru nokkrir sígildir úr tjónaskýrslum
Ég sagði lögreglunni að ég væri ómeiddur, en þegar ég tók ofan hattinn komst ég að því að ég var höfuðkúpubrotinn ........skarpur
Það kom bara ósýnilegur bíll, rakst á mig og hvarf .....hmmm úúúbbbsssssss
Ég sá að gamli maðurinn mundi aldrei hafa það yfir götuna og keyrði því á hann ............ já bara smá greiði
Ég var búinn að keyra í 40 ár þegar ég sofnaði við stýrið og lenti í slysinu ......hey muna eftir hvíldartímanum góði
Sá fótgangandi stóð og vissi ekkert í hvora áttina hann átti að fara svo að ég keyrði yfir hann....... en ekki hvað, fólk verður að vita hvert það ætlar
Ég var að reyna að drepa flugu og keyrði á símastaurinn ...........hah og ég náði henni
Hinn bíllinn keyrði beint á mig, án þess að gefa neitt merki um hvað hann ætlaði að gera .......dóninn
Maðurinn var alls staðar á veginum, ég varð að taka heilmargar beygjur áður en ég rakst á hann ...... já bara þvílíkt vesen að ná honum
Njótið
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 1. mars 2007
Mín heimska er að ná hámarki
Já það er allt að gerast í mínu gáfnafari, hver fréttin á eftir annari sem ég skil ekki.
Hvernig í ósköpunum er hægt að framkvæma svona og vita ekki að stafurinn var aldrei settur inn. Ég sé fyrir mér svona látbragðsleikara með flísatöng að taka eitthvað upp sem engin sér og þykist stinga því undir húðina á konunni, hann sér það ekki heldur en trúir því að þarna sé eitthvað, af því að það Á AÐ VERA ÞARNA.
Æ plís segið mér að ég sé ekki að verða heimskari og heimskari, segið mér að þetta sé vitleysa, segið mér að læknirinn hefði átt að sjá þetta...
...getið líka sagt mér brandara, þá líður mér vel
Fær ekki bætur þótt getnaðarvörn hafi ekki haldið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fimmtudagur, 1. mars 2007
Opinn fundur í kvöld
Hagur Hafnarfjarðar boðar til opins fundar í Hafnaborg Hafnarfirði fimmtudaginn 1.mars kl 20:00
Frummælendur á fundinum eru
Sveinn Hannesson, framkvæmdastjóri SI
Örn Friðriksson, vélvirki
Ingi B Rútsson, formaður Hags Hafnarfjarðar
Öllum er velkomið að mæta, félagsmönnum sem öðrum.
Hægt verður að skrá sig í félagið á staðnum en það er einnig hægt á www.hagurhafnarfjardar.is
eða með því að senda póst á hagur@hagurhafnarfjardar.is
Hvetjum alla til að mæta og kynna sér okkar sjónarmið.
Hlökkum til að sjá sem flesta.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 1. mars 2007
11 ára glæpakvendi
Hvað er eiginlega í gangi? Þetta er ótrúlegt. Megum þakka fyrir meðan stelpur og konur mega setja hárið í tagl eða hnút, ætli ég megi hafa handklæði um hausinn þegar ég er nýbúin í sturtu?
Við íslendingar erum greinilega ekki ein um það að fara með öfgarnar út í öfgar.
Bannað að leika knattspyrnu með handklæði á höfði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Miðvikudagur, 28. febrúar 2007
Er hann að segja að Sjúmmi sé hrokagikkur?
hehehe, Jean Todt talar um að Sjúmmi og Raikkonen séu ólíkir og segir svo að Raikkonen sé engin hrokagikkur.
...Todt segist ekki hafa myndað samskonar samband við Räikkönen og við forvera hans, Michael Schumacher. Mér geðjast Kimi, hann er hæverskur og alls enginn hrokagikkur...
Auðvitað greip ég það á lofti að hann væri að viðurkenna að Schumacher væri hrokagikkur sem ég hef alltaf haldið fram, hann er reyndar orðinn skrambi góður leikari núna sá gamli, brosir og fellir jafnvel tár þegar það hentar...
Bannfærði Alonso sig sjálfur gagnvart Ferrari? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Miðvikudagur, 28. febrúar 2007
Eiður er líka betri ;)
Eiður í hópnum en Eto'o ekki með í kvöld | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 28. febrúar 2007
gáfur mínar ná ekki svona langt
Nærhaldið fjarri á Óskarnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 28. febrúar 2007
Mamma!
Þetta væri nú bara eins og mamma mín færi að eignast barn núna, sé ekki alveg fyrir mér að hún væri til í það...hehemm...enda búin að ganga í gegnum það að reyna að ala mig upp...
En að öðru, er 61 árs dani orðinn eftirlaunaþegi?
Danskur eftirlaunaþegi eignaðist barn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 28. febrúar 2007
Eins og talað út úr mínu hjarta ;)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 28. febrúar 2007
Lárus bestur í heimi
Þeir eru jafnflottir í sparifötunum og keppnisbúningnum.
Mikið væri nú gaman fyrir stubbinn ef hann tæki gamla líka í þessu, eða á maður að vorkenna Sjúmma og vona að hann fái Lárusinn svona af því að þetta er í síðasta sinn...jaaaeeeeeiineeeei nei ég ætla ekki að gera það, Áfram Lons
Schumacher og Alonso keppa um Lárusinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)