Fimmtudagur, 8. mars 2007
Stækkun Isal
Athugasemd tekin af http://www.visir.is/article/20070225/FRETTIR01/70225058&SearchID=73274351240829
26. febrúar 2007 kl. 00:29
Um hvað er verið að kjósa ?
Ég held að það sé bara ágætt að Hafnfirðingar segi nei við stækkun Álvers. Ég er í grunninn með álverum og stóriðju, en til að gefa öllum þessum aðilum, sem telja sig sjálfkjörna landverndarmen og um verndun landsins fyrir komandi kynslóðir, yrði lokun í Straumsvík góð.
Ekki fyrir Hafnfirðinga, því það yrði alveg ægilegt rothögg fyrir vaxandi velmegunarbæ, ekkert vont vil ég óska Göflurunum. En ef þeir fella þetta, þá fá þeir eymdina yfir sig og er þeim að kenna (eins og þegar Siggi var sendur heim í X factor, vegna þess að allir töldu hann öruggan)
Þetta hefði samt þann kost að þessir sjálfskipuðu "verndarenglar" myndu ekki fyrir það fyrsta geta sýnt sig í Hafnarfirði. Hinsvegar myndi þetta hafa þau áhrif að aldrei aftur yrði umræða um hvort ætti ekki að virkja vegna jákvæðrar stóriðju. Helguvík yrði höfð stærri, því þarna losnar orka, Þorlákshöfn yrði veruleiki og að sjálfsögðu Húsavík.
"Sjálfskipuðu" englarnir yrðu jafn vinsælir á íslandi og Watson í Sea Shepard. Ég er fyrir skynsamlegri nýtingu auðlinda og í sátt við landið. Gerum okkur grein fyrir því að árið 2000 vissi nánast engin íslendingur hvar Kárahnjúkar voru, nema örfáir byssumenn á eftir hreindýrum. Síðan er þetta orðið að helstu perlu íslenskrar náttúru. Núna liggur vegur þarna uppeftir og er mikið annað að sjá en andapollinn, sem myndar uppistöðulón fyrir Kárahnjúka.
Veðurfarsbreytingar, eins og spáð er nú vegna breytinga á norðurslóð, það er reiknað með meiri ofankomu norðan og norðaustanlands, þannig að það ætti að vera nægjanlegt vatn fyrir Kárahnjúka.
Tækni til djúpborunar og margföldunar á nýtingu borhola er fyrirsjáanleg í nánustu framtíð og þessvegna vantar fleiri stóriðjur, ekki endilega Ál.
Þegar Rist tók við af Álskallanum, lét hún verða sitt fyrsta verk að setja gras, plöntur og tré í kringum Álverið, til augnayndis fyrir þá sem aka framhjá veksmiðjunni, en einnig sönnun þess að við erum ekki að gera allt umhverfi álversins að eyðimörk.
Nýtum þá orku sem við höfum, meðan hún er einhvers virði, því þróun er það hröð að eitthvað annað gæti komið í staðinn. Maður veiðir fisk meðan hann gefur sig, við erum veiðiþjóð og á meðan einhver vill kaupa af okkur orku eigum við að selja hana. Látum ekki 0,5 % þjóðarinnar, sem hefur hátt, breyta því.
kveðja
Sponni
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 8. mars 2007
Orð í tíma töluð
Eiður harðorður í spænskum fjölmiðlum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 8. mars 2007
Er þetta ekki karlmannsverk?
Hvað er verið að láta greyið konurnar synda í ískaldri ánni. Eru karlarnir að hafa þær að fíflum með því að láta þær halda að þetta sé eitthvað táknrænt. Hefði ekki verið miklu táknrænna og rökréttara að láta karlana synda og láta konurnar standa með svipu á bakkanum og berja karlana áfram í sundinu og ef þeir voguðu sér upp úr þá væru þeir samstundis "svipaðir" út í ánna aftur. Blóm hvað! ég hefði frekar viljað horfa á einhvern flottan karlmannskropp synda heldur en að fá blóm sem deyja strax úr kulda.
P.s. vona að ég þurfi ekki að taka það fram en geri það til öryggis: "ég er bara að grínast"
Haldið upp á baráttudag kvenna með sundspretti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 8. mars 2007
Praktísk og sniðug hugmynd
Uppskriftabók framtíðarinnar á mbl.is | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 7. mars 2007
Á að horfa í kvöld?
Þátturinn í gær með Inga Rútssyni og Jóhönnu Dalkvist vakti mikla athygli, þótt endursýning hans hafi því miður farist fyrir af tæknilegum orsökum,sem búið er að laga og verður hann endursýndur klukkan 9 í kvöld strax á eftir endursýningu þessa þáttar, á rás 18. á Breiðbandi og Adsl kerfi símans.
http://hrafnathing.blog.is/blog/hrafnathing/entry/140085/
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 7. mars 2007
Gat ekki endað betur
Ég var búin að blogga um að þarna myndi minn mæta mínum,þ.e. Eiður vs Liverpool og vonaði að Eiður myndi ekki spila með og því hægt að kenna því um þegar Liverpool inni. Þá væri ég sátt, því auðvitað vildi ég að Liverpool færi áfram.
Eiður sá hinsvegar við mér, því ég var ekki búin að sjá út þessa niðurstöðu. Auðvitað er þetta það allra besta sem gat gerst, að Eiður skoraði eina markið í leiknum en Liverpool kæmist samt áfram...aaaaalgjööörlega tær snilld
Sigurmark Eiðs Smára ekki nóg fyrir Barcelona | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 7. mars 2007
Af hverju ég?
Ég er einn stofnenda og ein af stjórnarmönnum í félaginu Hagur Hafnarfjarðar. Af hverju?
Ástæðan er sú að mér finnst eins og verið sé að ráðast á og ógna mínum persónulegu hagsmunum. Þann 31.mars munum við íbúar Hafnarfjarðar kjósa um hvort mitt fyrirtæki, Stímir, muni halda sínum viðskiptum við Isal áfram. Isal er eins og önnur fyrirtæki að ef þau fá ekki að þróast og stækka, þá kemur að því að það borgar sig ekki lengur að reka þau. Þess vegna mun Isal, ef ekki nógu margir segja "JÁ", hætta að endurnýja búnað og tæki nema það allra nauðsynlegasta. Við getum búist við því að áhrifa muni gæta mjög fljótlega hjá okkur og þá er ég ekki að tala um eftir eitt eða tvö ár heldur strax.
Við höfum fengið að heyra að fyrir okkur komi álver í Helguvík í staðin fyrir álverið í Straumsvík. Þannig verði okkar atvinnuöryggi ekki ógnað. Þetta er bara ekki svona einfalt.
Við þjónustum Isal meðal annars með daglegar rekstrarvörur í framleiðsludeildunum sem kemur til aðallega vegna þess hve sérhæfða framleiðslu Isal er með. Isal flytur út tilbúna vöru til völsunar. Hins vegar virðist vera að álver í Helguvík muni verða með framleiðslu á áli sem verður flutt út til endurbræðslu annarsstaðar. Þannig álver eru að engu leiti verri en Isal en þarfnast ekki eins mikillar þjónustu frá aðilum eins og okkur. Að öllum öðrum ólöstuðum hefur Isal alltaf verið fasti punkturinn í tekjuöflun okkar og er enn vegna þessa.
Mig langar að vinna í Stímir næstu árin og fá að ráða því hvenær ég hætti. Ég myndi þó sætta mig við að hætta ef fjölskylduaðstæður segðu svo til, en ég á mjög erfitt með að sætta mig við að íbúar Hafnarfjarðar kjósi um hvort ég verði að hætta þar eða ekki. Ég er hluti af margfeldisáhrifunum og afleiddu störfunum sem er oft talað um, ég er lifandi manneskja en ekki tala á blaði.
JÁ ég vil að Isal fái að þróast og stækka, JÁ ég vil að öll fyrirtæki fái að þróast og stækka, JÁ ég vil sjá fjölbreytt og gott atvinnulíf í Hafnarfirði. Þess vegna er ég í Hag Hafnarfjarðar.
birtist í Víkurfréttum 1.mars
http://www.vikurfrettir.is/tolublad/743/sida/15/default.aspx
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 6. mars 2007
Ja hérna
Leitin að týndu jarðskorpunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 5. mars 2007
Alcan: Skattar frá 2005, ekki 2004
Fram hefur komið í fréttum Útvarpsins að ríkið og Hafnarfjarðarbær deila um frá hvaða tíma það gildi að Alcan greiði skatta samkvæmt íslenskum lögum. Það felur í sér að Alcan greiði fasteignagjöld eins og önnur fyrirtæki í stað þess að greiða framleiðslugjald sem rennur til ríkisins. Fasteignagjöldin munu þá renna til Hafnarfjarðarbæjar.
Bærinn og reyndar Alcan líka hafa viljað að þetta gildi frá ársbyrjun 2004 og að ríkið endurgreiði bænum samkvæmt því. Ríkið hefur hins vegar talið að þetta eigi að taka gildi einu til tveimur árum síðar. Fréttastofa Útvarps hefur heimildir fyrir því að ríkið og Alcan hafi samið um að þessi yfirfærsla gildi frá ársbyrjun 2005 eða ári síðar en Hafnarfjarðarbær og Alcan fóru fram á. Þetta eru ráðamenn í Hafnarfirði ósáttir við. Þeir telja að þetta muni allt að 100 m.kr. í tekjur fyrir bæinn og eru ekki tilbúnir að gefa það fé eftir baráttulaust.
Ekki er ljóst hvenær lagafrumvarpið sem kveður á um þessa breytingu verður lagt fram. Samkvæmt upplýsingum úr iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu þar sem frumvarpið er í smíðum er þó hæpið að það verði kynnt fyrir ríkisstjórn á morgun. Alþingi á að ljúka störfum eftir tíu daga og aðeins 5 fundardagar eru eftir þannig að tíminn til að lögfesta þessa breytingu styttist.
tekið af: http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item146163/
" og eru ekki tilbúnir að gefa það fé eftir baráttulaust" ...og samt vilja ýmsir halda því fram að 800 milljónir á ári séu smáaurar fyrir bæinn...jah margt er nú skrýtið í kýrhausnum...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 5. mars 2007
Alcan er vinnan mín
Ég hef verið svo lánsöm í gegnum tíðina að geta ráðið hvar ég vinn og hve lengi. Ég vinn núna í Stímir í Hafnarfirði sem þjónustar álver á ýmsan hátt. Við hönnum, smíðum og setjum upp búnað fyrir álver um allan heim. Við erum einnig í viðhalds- og viðgerðarþjónustu. Hjá okkur hefur starfsfólkið mikla þekkingu og er menntað sem rafvirkjar, vélvirkjar, tæknifræðingar, vélfræðingar og rafeindavirkjar svo dæmi séu tekin. Stímir varð til vegna tilveru Isal árið 1995. Þar unnu fimm bræður sem sáu þörf og tækifæri fyrir svona fyrirtæki. Frá upphafi höfum við þjónustað álverið í Straumsvík og við höfum stækkað með hverju ári og erum nú nokkuð þekkt í álgeiranum. Að öllum öðrum ólöstuðum hefur Isal alltaf verið fasti punkturinn í tekjuöflun okkar og er enn, enda í næsta nágrenni við okkur.
Núna er hinsvegar svo komið að bæjarbúar í Hafnarfirði eiga að kjósa um hve lengi ég kem til með að vinna hjá Stímir. Við sem erum daglega með augun á álgeiranum vitum að ef Alcan fær ekki að stækka í Straumsvík kemur að því að loka verður verksmiðjunni og staðreyndin er að ég missi vinnuna mína samhliða því. Miðað við skoðanakönnunina hjá Capacent er fólk andvígt stækkun vegna loftmengunar og sjónmengunar. Raunin er hinsvegar sú að með nýrri tækni, eykst loftmengun mjög lítið og alls ekki í hlutfalli við stækkun álversins. Flúormengun eykst einnig sáralítið og verður langt undir viðmiðunarmörkum og sjónmengun gagnvart þeim sem keyra framhjá Isal mun minnka.
Álframleiðsla í heiminum mun ekki minnka heldur þvert á móti mun hún aukast. Það segir okkur að ef við notum ekki tækifærið og framleiðum hluta af því áli sem vantar upp í eftirspurnina, þá gerir það einhver annar. Við erum hinsvegar með bestu aðstöðuna til þess með tilliti til loftslagsbreytinga.
Mig langar að biðja ykkur Hafnfirðinga og aðra að skoða staðreyndir vel með jákvæðu en hlutlausu hugarfari og taka svo ákvörðun út frá þeim. Það eru jú tvær hliðar á öllum málum og ekki alltaf ástæða til að trúa fyrsta manni, heldur borgar sig að leita sér upplýsinga hjá fleiri aðilum. Mig langar áfram að ráða því hvar ég vinn og hve lengi, en nú er það undir ykkur komið hvort svo verði.
þessi grein birtist á bls.4 í Fjarðapóstinum 1.mars síðastliðinn
http://www.fjardarposturinn.is/images/FP-pdf/FP-2007-09-skjar.pdf
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)