Mánudagur, 5. mars 2007
Minn mætir mínum
Eiður Smári og félagar mættir til Liverpool | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 5. mars 2007
og enn af Bæjarstjórn
Frábært og tímabært framtak hjá Hafnarfjarðarbæ og hann á svo sannarlega hrós skilið fyrir þetta.
Þetta er góð byrjun á að styðja við bakið á eldri borgurum og ég hlakka til að sjá meira.
Vildarkort fyrir Hafnfirðinga 67 ára og eldri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 5. mars 2007
finnur sig
Montoya vinnur fyrsta NASCAR-sigurinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 4. mars 2007
það sem ég vildi sagt hafa...
...sjá http://julli.blog.is/blog/julli/entry/137697/?t=1173024607#comments
Segir mengun frá Alcan aukast við stækkun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 3. mars 2007
Mútað með menningu
Fékk bréf frá Glitnir inn um lúguna hjá mér í gær, þar sem hann býður mér og öllum öðrum frítt í Hafnarborg og í Byggðasafnið í Hafnarfirði ALLT ÁRIÐ. Þetta er frábært framtak hjá Glitni og alltaf gaman að sjá þegar vel er stutt við menningu og listir bæjarins okkar, gæti meira að segja trúað því að ég nýti mér þetta.
...var samt að spekúlera...
hvað ætli hefði verið á forsíðu blaðanna í morgun ef Isal hefði verið að bjóða... MÚTUR!
hvað ætli hefði verið rætt í dag á blogginu ef Isal hefði verið að bjóða... MÚTUR!
hvað ætli mörgum miðum hefði verið skilað ef Isal hefði verið að bjóða... ja trúlega engum þar sem fólk er alltaf ánægt með að fá eitthvað frítt... sama hvaðan gott kemur... þó það séu MÚTUR!
...en var bara að spekúlera
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Laugardagur, 3. mars 2007
Andstyggðar
Æ, þetta var vont, var svo viss um að mitt lið hefði þetta. Vesen að vera með svona varamenn, enginn Ole Gunnar sem skorar alltaf ef þarf á síðustu mínútunum en þá kemur bara einhver Jón í staðin... og ekki einu sinni séra...
En þetta var fyrsta tapið á heimavelli í 31 leik, töpuðum síðast á heimavelli fyrir Chelsea í október 2005, en jæja svona er lífið, það er fagurt
John O'Shea tryggði Man.Utd. sigur á Anfield | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 3. mars 2007
Staðfastur þjóðverji
Já þjóðverjar hafa oft verið nefndir í sömu andrá og staðfesta og þrjóska en hvernig á nokkur maður að standast þetta. Fá mynd af konunni sinni naktri eftir 10 daga dvöl í smá skúr, konan hefur allavega greinilega vitað hvað þyrfti til
Tók líka eftir því að hún er 25 ára og orðin fimm barna móðir, spurning hvort hún ætti bara að geyma hann í skúrnum svo það fjölgi ekki börnunum meira
Konan laðaði karlinn niður með nektarmynd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 2. mars 2007
Enn af bæjarfulltrúum
Ef ég myndi leggja fram tillögu til fólks væri ég væntanlega að leita eftir því að hún yrði samþykkt, ekki færi ég að bera fram tillögu sem ég vonaði að yrði felld. Ég myndi líka tala máli tillögunar, allavega að lágmarki segja hvað mér finndist um hana. Ég myndi svo sannarlega ekki fela mig út í horni og þegja, það eitt er víst.
Eftir þrjú ár þegar næstu bæjarstjórnarkosningar verða, verður forvitnilegt að fylgjast með þessum sömu bæjarfulltrúum. Ætla þeir þá að þegja þunnu hljóði til að gefa okkur frið til að kjósa? Ætla þeir þá að fela sig út í horni og leyfa okkur að hugsa í friði? Ætla þeir þá að sitja hjá og sjá bara hvað verða vill?
Eins og einn sagði á síðunni okkar
Mikið vildi ég þó geta spurt bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar í Hafnarfirði um múlbindingu þeirra um eitt mikilvægasta málefni bæjarfélagins um áratugaskeið! Ef þeir ætla að halda æpandi þögninni til streitu, er ekki ónýtt að spyrja þá hvort þeir muni setja sama hátt á fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar, steinþegja og leyfa bæjarbúum að gera kosningamálin upp við sig í friði og spekt, hver og einn fyrir sig????
Ég ætla að muna eftir að fylgjast með þeim og mér finnst ólíklegt að ég muni þegja þá. Ég mun segja mína skoðun og ég mun fara á kjörstað og ég mun segja öllum hvað ég mun EKKI kjósa.
Hvetja Hafnfirðinga til að taka þátt í íbúakosningu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 2. mars 2007
Gömul hugsun - Ný frétt
Það rifjaðist upp fyrir mér þegar ég sá þessa frétt pínulítið sem pirraði mig rétt eftir heimsmeistarakeppnina í handbolta. Sá smá pistil þar sem Gaupi fullyrti að íslendingar vissu ekki hvað Alfreð Gíslason væri góður þjálfari.
Ég held nefnilega að ef einhver hefur ekki vitað það fyrir heimsmeistarakeppnina að Alfreð væri með bestu þjálfurum í heimi, að þá vissi hann það alveg örugglega eftir heimsmeistarakeppnina. Alfreð sýndi þar og sannaði að hann er með þeim allra allra bestu í heimi og fréttin í morgun í Fréttablaðinu sannar það bara enn og aftur. Góð saga er aldrei of oft sögð.
Gaupi er ekki sá eini sem vissi þetta en lét það líta svoleiðis út að við værum svo vitlaus að sjá þetta ekki en hann svo gáfaður. Það er hans heimska.....ekki mín...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 2. mars 2007
Hjálp frá Dönum?
Lögregla kölluð út vegna ölvunarláta og slagsmála | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)